Krónikan - Gerðarsafni

Úrslit flokksvalsins í Kópavogi

Laugardaginn 7. febrúar komum við saman á Krónikunni í Gerðarsafni þegar niðurstöður flokksvals Samfylkingarinnar í Kópavogi verða kynntar.

Við hvetjum félagsfólk og stuðningsmenn að fagna með okkur á Krónikunni, niðurstöðurnar verða kynntar stundvíslega kl. 18:00 og verða frambjóðendur á staðnum frá kl. 17.

Komdu og vertu með í þessari lýðræðislegu hátíð, fögnum saman niðurstöðunum og njótum saman í góðum félagsskap.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Kosningarétt hafa allir flokksfélagar og stuðningsmenn Samfylkingarinnar sem eiga lögheimili í Kópavogi og hafa náð 16 ára aldri og hafa skráð sig í Samfylkinguna fyrir kl. 9 föstudaginn 6. febrúar.