Flokksval í Reykjavík

Um er að ræða bindandi flokksval fyrir efstu sex sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík, með svokölluðum paralista, þar sem jafnræði kynja er tryggt í hverjum tveimur sætum. Kosningin fer fram rafrænt þann 24. janúar 2026.
Kjörseðill: ock.is/xs2026
Kosningarétt hafa allir flokksfélagar (ekki stuðningsmenn) Samfylkingarinnar sem eiga lögheimili í Reykjavík og hafa náð 16 ára aldri. Frestur til að skrá sig inn í flokkinn til að geta tekið þátt í flokksvalinu var 22. janúar kl. 23:59.
Flokksvalið fer fram rafrænt frá kl. 24:00 - 18:00 laugardaginn 24. janúar. Slóð á kjörseðil verður birtur hér og sendur út í tölvupósti á kjörskránna.
Að lokinni rafrænni auðkenningu opnast kjörseðillinn.
- Kjósandinn þarf að velja tungumál kjörseðils. Í boði eru íslenska, enska og pólska.
- Raða skal frambjóðendum í sæti með því að velja tölu úr flettiglugga við nafn og mynd frambjóðandans.
- Minnst skal raða fjórum frambjóðendum og mest sex á kjörseðlinum.
- Hægt er að skila auðum seðli með því að velja „Skila auðu“.
- Þegar búið er raða frambjóðendum í sæti er smellt á „Áfram“ hnapp.
- Nú birtist staðfestingargluggi þar sem röð frambjóðenda birtist eins og hún var valin.
- Með því að smella á „Kjósa“ happinn er valið staðfest, en einnig er hægt að fara til baka og endurraða valinu áður en valið er staðfest.
- Hægt er að breyta vali á kjörseðli allt til klukkan 18:00 á kjördegi. Síðasta atkvæði telur.
Til þess að tryggja aðgengi að kosningunum verður kosningaaðstoð á Hallveigarstíg 1 á kjördegi frá kl. 10:00 - 18:00 sem og í síma skrifstofu flokksins, 414 2200 og í síma kjörstjórnar 661 6973. Boðið verður upp á lausn fyrir fólk sem ekki hefur rafræn skilríki til þess að kjósa í persónu í gegnum rafræna kosningakerfið.