Sunnuhlíð 12 - Akureyri

Félagsfundur - upptaktur að bæjarstjórnarkosningum 2026

Stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri boðar til félagsfundar laugardaginn 25. október 2025 kl. 10:00 í sal félagsins að Sunnuhlíð 12.
(English below)

Á fundinum verður fjallað um bæjarstjórnarkosningarnar 2026.
Stjórnin mun fara yfir þau verkefni sem framundan eru við undirbúning framboðs flokksins á Akureyri næsta vor, og félagsfólki gefst tækifæri til að spyrja spurninga, koma með hugmyndir og ræða áherslur næstu mánaða.

Við viljum heyra frá þér – hvað skiptir máli fyrir bæinn okkar, og hvað vilt þú sjá Samfylkinguna setja á oddinn í kosningabaráttunni?

Jafnaðarstefnan hefur sjaldan átt meira erindi við samtímann, og nýlegar kannanir benda til þess að Akureyringar séu sammála.
Við munum sækja til sigurs næsta vor!

☕ Léttar veitingar og heitt á könnunni.
Öll hjartanlega velkomin.  


---
The board of the Social Democratic Alliance (Samfylkingin) in Akureyri holds a members meeting on Saturday, October 25, 2025, at 10:00 AM in the society's hall at Sunnuhlíð 12.

The subject of the meeting will be the 2026 municipal elections. At the meeting, the board of the society will account for the tasks ahead in preparing the party's campaign in Akureyri next spring. The meeting will also provide members with the opportunity to ask the board questions as well as express what is on their minds and what they want to see prioritized next spring.

Social democracy has rarely, if ever, been more relevant to contemporary times, and recent polls indicate that Akureyri residents agree. We will go for victory next spring!

Light refreshments, hot beverages available.
All welcome!