Súpufundur með bæjarfulltrúum

27. nóvember, kl. 18:00 á Strandgötu 43. Boðið verður uppá súpu að hætti hússins.
Bæjarfulltrúar flokksins í Hafnarfirði Guðmundur Árni Stefánsson, Sigrún Sverrisdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson og Stefán Már Gunnlaugsson (í forföllum Hildar Rósar Guðbjargardóttur) munu fara yfir áherslur Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fara yfir stöðu mála í bænum okkar nú þegar fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar verður afgreidd í byrjun desember. Skipulagsmál, húsnæðismál, almannavarnir, heilsugæsla, hjúkrunarheimili, leikskólar og grunnskólar. Allt þetta og miklu meira á dagskrá.
Vertu með í mótun stefnunnar og hafðu áhrif, öll eru velkomin og við hlökkum til að sjá ykkur!