Samfylkingin býður fram í Ísafjarðarbæ

Samfylkingin mun bjóða fram í Ísafjarðarbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Fundi uppstillingarnefndar Í-listans lauk í gærkvöldi með þeirri niðurstöðu að Í-listinn mun ekki leggja fram sameiginlegt framboð í komandi sveitastjórnarkosningum.
Slitin urðu í fullri sátt og í samræmi við farsælt samstarf Í-listans, sem byggst hefur á gagnkvæmu trausti og virðingu á milli flokkanna. Samfylkingin mun því sækja sitt umboð beint til kjósenda undir eigin merkjum.
Næstu skref eru að boða til fundar og skipuleggja framboð Samfylkingarinnar til sveitastjórnar í Ísafjarðarbæ. Við hvetjum öll sem vilja leggja Samfylkingunni lið í komandi kosningabaráttu til þess að taka þátt með okkur.
Uppstillingarnefnd hefur tekið til starfa og eru þau sem hafa áhuga á framboði, þátttöku í kosningabaráttu eða vilja tilnefna fólk til framboðs er bent á að hafa samband við uppstillingarnefndina:
Magnús Bjarnason, gsm. 698-8424, maggibjarna@gmail.com
Edda Katrín Einarsdóttir, gsm. 866-9638, eddakatrine@gmail.com