Dóra Björt Guðjónsdóttir gengur til liðs við Samfylkinguna

Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, hefur gengið til liðs við Samfylkinguna. Greint var frá því á blaðamannafundi í Ráðhúsinu fyrr í dag þar sem hún kom fram ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra.

Heiða Björg fagnaði komu Dóru Bjartar til Samfylkingarinnar og lagði áherslu á að meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur haldist óbreyttur. Í kjölfar breytingarinnar tekur Alexandra Briem sæti Dóru Bjartar í oddvitahópi meirihlutans, en Dóra Björt tekur sæti í borgarráði fyrir hönd Samfylkingarinnar.

Dóra Björt segir ákvörðunina hafa verið tekna eftir vandlega umhugsun og að hún hafi alla tíð litið á sig sem jafnaðarmanneskju. Hún nefndi áhrifamikla leiðtoga jafnaðarmanna í íslenskum stjórnmálum sem fyrirmyndir, þar á meðal Vilmund Gylfason, Jóhönnu Sigurðardóttur, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Guðrúnu Ögmundsdóttur.

Þá lýsti hún einnig ánægju með störf Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra.

Samfylkingin býður Dóru Björt Guðjónsdóttur hjartanlega velkomna til starfa.