Kristrún endurkjörin formaður Samfylkingarinnar

Kristrún Frostadóttir var endurkjörin formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í Grafarvogi í dag, með 98,67 prósentum greiddra atkvæða.

Kristrún Frostadóttir hefur verið endurkjörin formaður Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands, en formannskjörið fór fram á landsfundi flokksins, sem hófst í dag. Kristrún hlaut 98,67 prósent greiddra atkvæða.

Hún var ein í framboði, en framboðsfrestur til embættis formanns rann út 4. apríl.

Kristrún Frostadóttir kom inn í starf Samfylkingarinnar í aðdraganda þingkosninganna árið 2021, var þá oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og náði kjöri á Alþingi.

Hún bauð sig fram til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi árið 2022 og tók þar við embætti formanns af Loga Einarssyni.

Kristrún var í alþingiskosningunum 2024 oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður og undir forystu hennar vann flokkurinn kosningasigur, varð stærsti flokkur landsins í fyrsta sinn frá 2009 og fékk skýrt umboð frá landsmönnum til að leiða ríkisstjórn.

Eftirleikinn þekkjum við, Samfylkingin myndaði samhenta ríkisstjórn með Viðreisn og Flokki fólksins, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.