Aðalfundur kjördæmisráðs Suðvesturkjördæmis

Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi var haldinn á Strandgötunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 19. október.
Fundurinn var vel sóttur og umræður voru líflegar. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, mætti og gerði grein fyrir Öruggum skrefum í heilbrigðis- og öldrunarmálum, nýsamþykktri stefnu Samfylkingarinnar í málaflokknum. Stefnan byggir á metnaðarfullu málefnastarfi með breyttu sniði eftir kjör nýrrar forystu, sem m.a. byggði á því að opna vinnuna upp á gátt og færa málefnavinnuna nær almenningi um allt land. Einnig voru almennar umræður um stjórnmálaástandið og sátu Kristrún og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður flokksins í kjördæminu fyrir svörum auk Guðmundar Árna Stefánssonar, varaformanns flokksins sem jafnframt var fundarstjóri aðalfundarins.y
Fyrir utan almennar umræður um stjórnmálin þá voru tekin fyrir hefðbundin aðalfundarstörf. Ólafur Ingi Óskarsson, formaður kjördæmisráðs, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa eftir fjögur ár sem formaður kjördæmisráðs. Fundarmenn þökkuðu honum góð og farsæl störf fyrir kjördæmisráðið. Nýr formaður var kjörinn Gauti Skúlason og með honum í stjórn voru kjörin Erlendur Geirdal, Elín Eiríksdóttir, Kristján Sveinbjörnsson og Árný Hekla Marinósdóttir.