Góður gangur í málefnavinnu um heilbrigðismál

Samfylkingin vill þakka hundruðum Íslendinga fyrir gott samtal um heilbrigðismál.

Á síðustu vikum hefur flokkurinn staðið fyrir á fjórða tug opinna funda um land allt og fjölda vinnufunda með fólki af gólfinu og öðrum sérfræðingum. Heilbrigðismálin hafa verið í brennidepli og verða það áfram fram að næsta flokksstjórnarfundi. Útspil Samfylkingarinnar í heilbrigðismálum verður kynnt í haust og þá mun áherslan í málefnastarfinu færast yfir á atvinnu og samgöngur.

„Takk fyrir að gefa ykkur tíma“
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist virkilega þakklát fyrir framlag allra þeirra sem hafa tekið þátt í vinnunni með einum eða öðrum hætti. „Ég vil bara segja við alla sem hafa tekið þátt: Takk fyrir að gefa ykkur tíma. Við kunnum virkilega vel að meta það og tökum því alls ekki sem sjálfsögðum hlut. Fyrsta skrefið var að halda alla þessa opnu fundu með almenningi og sérfræðingum um land allt. Og það hefur sannarlega gefið okkur mikinn efnivið og innblástur, “ segir Kristrún og tekur fram að á opnu fundunum hafi teiknast upp skýr mynd af raunhæfum væntingum fólksins í landinu um framfarir á sviði heilbrigðismála.

Sumarið fer í að vinna úr fundunum
Kristrún segir að frekari vinna sé framundan í sumar. „Við í forystu flokksins munum halda vinnunni áfram í sumar ásamt stýrihópnum um heilbrigðismál. Það er nóg af efni til að vinna úr. Núna í júní ætlum við að taka næstu skref og eiga fókuseraðri vinnufundi með fólki sem þekkir vel til heilbrigðisþjónustu og öldrunarmála á Íslandi og sem hefur skráð sig sérstaklega til leiks í málefnavinnuna með okkur,“ segir Kristrún sem bindur miklar vonir við vinnuna.

Boðar verklýsingu fyrir nýja ríkisstjórn
„Við ætlum að leggja til raunhæfar lausnir og forgangsröðun; verklýsingu fyrir nýja ríkisstjórn undir forystu jafnaðarfólks. Eftir sumarið verðum við komin lengra með vinnuna og þá munum við aftur virkja með okkur hinn almenna flokksfélaga og aðra landsmenn sem vilja leggja okkur lið.“

Í stýrihópi Samfylkingarinnar um heilbrigðismál sitja þau Anna Sigrún Baldursdóttir úr Reykjavík sem er formaður hópsins, Guðný Birna Guðmundsdóttir frá Reykjanesbæ og Sindri Kristjánsson frá Akureyri.