Sameinuð stjórnarandstaða kallar eftir breyttri forgangsröðun

Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hafa sameinast um áherslur vegna fjárlagabandorms ríkisstjórnarinnar og lagt fram sameiginlegt nefndarálit um frumvarpið. 

Þetta er í takti við þá samstöðu sem náðist hjá sömu flokkum við afgreiðslu fjárlaga og fjáraukalaga og varð til þess að Alþingi samþykkti að greiða öryrkjum út 53 þúsund króna eingreiðslu í desember, skatta- og skerðingarlaust, auk þess sem fjármagn var tryggt til niðurgreiðslu almennrar sálfræðiþjónustu árið 2022. 

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar er framsögumaður álits minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar og mælti fyrir því á Alþingi í dag. Með honum að álitinu standa þau Halldóra Mogensen frá Pírötum, Daði Már Kristófersson varaþingmaður Viðreisnar og Ásthildur Lóa Þórsdóttir frá Flokki fólksins. Í nefndarálitinu koma m.a. fram eftirfarandi sjónarmið:

  • Ofuráhersla ríkisstjórnarinnar á hækkun frítekjumarks atvinnutekna hjá eldra fólki (meðan kjaragliðnun milli launa og lífeyris heldur áfram og frítekjumark lífeyristekna stendur í stað) felur í sér að einungis er komið til móts við fámennan hóp. Samkvæmt minnisblaði frá félagsmálaráðuneytinu má ætla að aðgerðin gagnist um 1.300 einstaklingum eða 3% aldraðara sem eru á skrá TR. Þar af eru langflestir í efstu tekjutíundunum, 67 prósent eru karlar og 33 prósent konur. Öll skref sem stigin væru til hækkunar hins almenna frítekjumarks myndu dreifast miklu jafnar eftir tekjutíundum og kyni heldur en sú hækkun sem stjórnarmeirihlutinn leggur áherslu á. Þetta er röng og óréttlát forgangsröðun í almannatryggingamálum. 
  • Í ljósi yfirlýsinga ríkisstjórnarinnar um að auka þurfi möguleika öryrkja til virkni og atvinnuþátttöku á eigin forsendum skýtur skökku við að frítekjumark atvinnutekna hjá öryrkjum eigi ekki að fylgja hækkun frítekjumarks atvinnutekna hjá eldra fólki um áramótin en ljóst er að skerðingarnar í almannatryggingakerfinu eur ein helsta hindrunin í vegi aukinnar atvinnuþátttöku öryrkja. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins í efnahags- og viðskiptanefnd leggja til þá breytingu á frumvarpinu að frítekjumark atvinnutekna hjá öryrkjum hækki upp í 200 þús. kr. um áramótin eins og hjá eldra fólki. 
  • Afkoma ríkisins hefur versnað á undanförnum árum og sú þróun var hafin áður en heimsfaraldurinn skall á. Henni þarf að snúa við og það verður ekki gert með ómarkvissum og þensluhvetjandi skattastyrkjum. Styrkja þarf tekjuhlið ríkissjóðs og þá er rétt að horfa sérstaklega til skattlagningar fjármagns, eigna og hæstu tekna auk sanngjarnra og skynsamlega útfærðra auðlindagjalda. Auk þess þarf að liggja fyrir langtímaáætlun um græna tekjuöflun, hvernig sköttum og gjöldum verði beitt til að stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda og hvernig tryggt sé að tekjulægri hópar beri ekki hallann af því. 

Hér má sjá nefndarálitið í heild en þar er einnig gagnrýnt að sóknargjöld séu hækkuð, að ekki sé brugðist við tekjutilflutningi þar sem launatekjur eru ranglega skráðar sem fjármagnstekjur og að stöðnun blasi við hvað varðar barnabætur og félagslega húsnæðisuppbyggingu.