Tillaga borgarstjórnar um heildstæða athugun á starfsemi vistheimilisins Arnarholts

Nú í kvöld um kl. 19:25 var tillaga borgarstjórnar samþykkt einróma á borgarstjórnarfundi. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mælti fyrir tillögunni, hann sagði í samtali við fréttastofu RÚV fyrr í dag "meginatriðið er að þetta verði vel gert og af virðingu fyrir því sem þarna gerðist, þannig að málið verði upplýst og réttar ályktanir af því dregnar.“ Frétt á ruv.is.

Tillöguna, eins og hún var lögð fram, má lesa hér fyrir neðan.

Í ljósi upplýsinga sem benda til illrar meðferðar á heimilisfólki á vistheimilinu Arnarholti fyrr á árum er lagt til að borgarstjórn samþykki að borgarstjóri fari þess á leit við forsætisráðherra að fram fari heildstæð athugun á starfsemi vistheimilisins Arnarholts og eftir atvikum annarra meðferðar- eða vistheimila á tilteknu árabili.

Greinargerð: Samstaða er um það í borgarstjórn að fullt tilefni sé til að taka út vistheimilið að Arnarholti eftir að fram komu upplýsingar um illan aðbúnað þar fyrr á árum. Athugun borgarlögmanns hefur leitt í ljós að jafnvel þótt Reykjavíkurborg sé sannarlega bær til að taka ákvörðun um að skipa nefnd til að gera almenna og heildstæða athugun á starfsemi vistheimilisins Arnarholts eða annarra meðferðar- og vistheimila sem rekin hafa verið á vegum Reykjavíkurborgar á tilteknu árabili, þá myndi slík nefnd að óbreyttum lögum ekki hafa þær heimildir sem nauðsynlegar eru til að framkvæma athugun með þeim hætti sem þörf er á. Með hliðsjón af þeim verkefnum sem ætla má að þurfi að fela nefnd til að gera úttekt á starfsemi Arnarholts eða annarra meðferðar- eða vistheimila með viðhlítandi hætti verður að telja nauðsynlegt að skýrar lagaheimildir liggi til grundvallar skipan, stöðu, valdheimildum og verkefnum slíkrar nefndar. Með vísan til eðli þeirra upplýsinga sem komu nýverið fram í dagsljósið um vistheimilið Arnarholt er því talið rétt að borgarstjóri fari þess á leit við forsætisráðherra að hlutast til um að fram fari almenn og heildstæð athugun á starfsemi vistheimilisins Arnarholts og eftir atvikum annarra meðferðar- og vistheimila á tilteknu tímabili samkvæmt nánari útfærslu.

Tillagan á síðu Reykjavíkurborgar.