Logi fundar með forsætisráðherrum og formönnum jafnaðarmanna á Norðurlöndunum

Logi Einarsson sótti í dag árlegan leiðtogafund norrænna jafnaðarmanna. Loftslagsmál og COVID19 voru aðaláhersluefni fundarins sem var haldinn á fjarfundarformi. Formenn allra jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndunum sóttu fundinn ásamt leiðtogum norrænu verkalýðshreyfingarinnar. Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, setti fundinn.
Leiðtogar jafnaðarmannaflokkanna og verkalýðshreyfingarinnar ræddu viðbrögð stjórnvalda á Norðurlöndunum við COVID19 og þá viðspyrnu sem er framundan. Formenn flokkanna lögðu áherslu á að leiðin út úr atvinnuleysinu og efnahagsþrengingunum lægi í fjárfestingu í velferð fólks og stórfelldri grænni uppbyggingu.
„Verði Samfylkingin leiðandi í næstu ríkisstjórn munum við marka okkur græna utanríkisstefnu - og fyrsta stóra verkefnið okkar tengt loftslagsmálum verður þá þátttaka Íslands í COP 26 loftslagsráðstefnunni í Glasgow í nóvember. Þar verður samvinna Norðurlandanna lykilatriði. Við í Samfylkingunni viljum setja miklu metnaðarfyllri loftslagsmarkmið en núverandi ríkisstjórn og fylgja þeim eftir af krafti - enda Ísland í einstakri stöðu til að skara fram úr á alþjóðavettvangi með alla sína endurnýjanlegu orku. ” - sagði Logi Einarsson á fundinum.
Fundurinn var haldinn á vegum SAMAK: samstarfsvettvangi norrænna verkalýðshreyfinga og jafnaðarmannaflokka.
Eftirfarandi loftslagsyfirlýsing var samþykkt af öllum viðstöddum:
Leiðtogar jafnaðarmanna á Norðulöndunum vilja tryggja réttlát græn umskipti
Á endanum verða allir að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum - en við verðum að tryggja að kostnaðurinn af grænum umskiptum lendi ekki skarpast á þeim sem minnst hafa milli handanna. Raunar gætu grænu umskiptin leitt af sér sanngjarnari skiptingu gæða en við þekkjum í dag, en komi til þess að fólk upplifi vaxandi ójöfnuð eða þurfi að taka á sig óhóflegar byrðar í baráttunni við loftslagsbreytingar mun það veikja stuðning við aðgerðir til langtíma.
Norrænir jafnaðarmenn ætla sér að vera í farabroddi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og hraða grænum umskiptum í samvinnu við atvinnurekendur, launþega og almenning. Við trúum því að saman finnum við bestu lausnirnar; með aukinni samvinnu tryggjum við þátttöku allra.
Við stöndum ekki einungis frammi fyrir ógn vegna loftslagsbreytinga, heldur er það líka umhverfið, náttúran og líffræðilegur fjölbreytileiki sem ógn steðjar að. Mörg af þeim verkefnum er snúa að svæðisbundinni náttúruvernd eru líka gagnlegar í alþjóðlegri loftslagsbaráttu: ávinningurinn af þeim getur því verið tvöfaldur. Norrænir jafnaðarmenn telja að ekki sé hægt að leysa náttúru- og loftslagsvánna með leiðum markaðarins einum saman. Til að takast á við vandann þarf bæði pólitískt eftirlit og forystu jafnaðarmanna og verkalýðshreyfingarinnar.
Norrænu jafnaðarmannaflokkarnir og verkalýðshreyfingin ætla sér að vera í fararbroddi við að tryggja sanngjörn umskipti. Það gerum við af ábyrgð, skynsemi og í náinni samvinnu.
Eftirfarandi undirrita þessa yfirlýsingu:
Mette Frederiksen, partiformand Socialdemokratiet, Danmark
Lizette Risgaard, formann Fagbevægelsens Hovedorganisation, Danmark
Logi Einarsson, partileder Samfylkingin, Island
Kristján Þórður Snæbjarnarson, viceformand ASI, Island
Sanna Marin, partileder Finlands Socialdemokratiska Parti
Jarkko Eloranta, leder Finlands Fackförbunds Centralorganisation
Stefan Löfven, partileder Socialdemokraterna, Sverige
Susanna Gideonsson, leder LO, Sverige
Aksel V. Johannesen, partileder Javnaðarflokkurin, Færøyene
Erik Jensen, partileder Siumut, Grønland
Jonas Gahr Støre, partileder Arbeiderpartiet, Norge
Hans-Christian Gabrielsen, leder LO, Norg
Camilla Gunell, leder Ålands Socialdemokratiske parti