Ingibjörg Iða kjörin forseti Ungra jafnaðarmanna í Garðabæ

Ingibjörg Iða Auðunardóttir var í gærkvöldi kjörin forseti Gunnhildar - félags Ungra jafnaðarmanna í Garðabæ á aðalfundi félagsins.
Heiðursgestur fundarins var Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna 78, varabæjarfulltrúi í Garðabæ og fyrrverandi meðlimur í framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna (UJ).
Um er að ræða endurvakið aðildarfélag UJ en kosið var um nýtt nafn félagsins á fundinum. Nafnið, Gunnhildur, er sótt í kennileiti í Vífilsstaðahlíð sem sagan segir að heiti eftir hjúkrunarkonu á gamla Vífilsstaðaspítala.
Einnig fór fram kjör til stjórnar en hana skipa ásamt Ingibjörgu Iðu þau Askur Hrafn Hannesson, Gabríella Snót Schram, Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir og Theodóra Fanndal Torfadóttir.
Á fundinum var auk þess samþykkt stjórnmálaályktun félagsins þar sem lögð er áhersla á félagshyggju, festu í loftslagsmálum og lýðræðislega þátttöku ungs fólks.
